Snældan heimaþjónusta
Öll heimaþjónusta á einum stað
Staðsetning
Snældan heimaþjónusta er staðsett í eldri hluta Sjúkrahússins á Hvammstanga og er aðgengi frá Spítalastíg, inngangur vestast
Samþætt þjónusta
Sameiginleg aðstaða fyrir heimaþjónustu, heimastuðning, dagdvöl og tengiráðgjafa. Öll þjónusta á sama stað
Markmið Snældu
Markmið Snældu er að veita sveigjanlega og góða þjónustu fyrir eldri borgara í Húnaþingi vestra sem þurfa á henni að halda
Hafðu samband
Sími: 432-1306
Sími hjá tengiráðgjafa: 432-1321
Hvaða þjónusta er í boði?
Þeir sem ekki geta séð hjálparlaust um persónulega umhirðu eða heimilishald geta sótt um stuðningsþjónustu. Þjónustan miðast við einstaklingsbundið mat á þjónustuþörf. Leitast er við að veita þá þjónustu sem viðkomandi er ófær um að annast sjálfur.
Heimastuðningur
Heimastuðningur er fyrir þau sem þurfa stuðning vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, álags eða veikinda.
Heimastuðningur er stuðningur við athafnir daglegs lífs.
Dæmi um heimastuðning:
  • Aðstoð við heimilshald
  • Aðstoð við matarinnkaup
  • Aðstoð við erindagjörðir
  • Félagslegur stuðningur
  • Öryggisinnlit
  • Sérhæfð ráðgjöf
  • Aðstoð við umönnun barna
  • Stuðningur við börn
Heimahjúkrun
Hlutverk heimahjúkrunar er að styrkja og viðhalda andlegu og líkamlegu heilbrigði fólks og draga úr einangrun, einkennum og afleiðingum sjúkdóma eins og kostur er.
  • Lyfjaþjónusta
  • Aðstoð við athafnir daglegs lífs
  • Eftirlit með heilsufari
  • Aðstoð við bað
Dagdvöl
Hlutverk dagdvalar er að bjóða félagslegan stuðning, tómstundariðju, eftirlit með heilsufari, þjálfun, fræðslu, ráðgjöf og aðstoð við athafnir dagslegs lífs.
Dagdvölin er frá 09:30-15:30.
Akstursþjónusta er í boði milli dagdvalar og heimilis.

Innifalið er hádegismatur og miðdagshressing
Þar er boðið uppá fjölbreytta afþreyingu eins og til dæmis, handavinnu, föndur, smíðavinnu, göngutúra og aðra almenna samveru
Einnig er boðið uppá:
  • Aðstoð við bað og annað hreinlæti
  • Sjúkraþjálfun
Matarþjónusta
Heimsending á mat er í boði fyrir þá sem þurfa innan Hvammstanga og Laugarbakka. Maturinn er framleiddur á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga.
Einnig er í boði fyrir þá sem þurfa að koma í mat í matsal sjúkrahúss kl 11:30 alla daga vikunnar.
Hægt er að kaupa og fá sendan mat alla daga vikunnar eða ákveðna daga.
Upplýsingar um kostnað og umsóknir má finna inná hunathing.is
Því það á að vera gott að eldast
Gott að eldast er aðgerðaráætlun félags- og heilbrigðisráðuneytis í málefnum eldra fólks á Íslandi. Ein aðgerð er þróunarverkefni um samþætta heimaþjónustu sem Húnaþing vestra er þátttakandi í. Allar aðgerðir miða að því að tryggja eldra fólki þjónustu sem stuðlar að því sem flest þeirra séu þátttakendur í samfélaginu - sem allra lengst og á þeirra eigin forsendum.
Snældan heimaþjónusta er hluti að þróunarverkefninu Gott að eldast. Þar tvinnast saman þjónustuþættir á vegum félags- og heilbrigðisþjónustu sem áður voru aðskildir.
Tengiráðgjafi og heimaendurhæfing
Hluti af þróunarverkefninu Gott að eldast er að ráða tengiráðgjafa og starfsmenn í heimaendurhæfingu.
Tengiráðgjafi
Tengiráðgjafar vinna gegn einmannaleika og félagslegri einangrun og eru í góðum tengslum við staðbundna aðila til að nýta sem best þau úrræði sem fyrir eru í samfélaginu. Tengiráðgjafi vinnur að því að brjóta niður hindranir milli mismunandi þjónustustofnana og skoðar hvernig er hægt sé að vinna saman að því að draga úr félagslegri einangrun viðkvæmra hópa.
Tengiráðgjafi er tengiliður fyrir einstaklinga inn í kerfið.
Ef þú veist ekki hvert þú átt að leita þá getur þú leitað til tengiráðgjafa sem kemur þér áfram á rétta braut.
Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir er starfandi tengiráðgjafi hjá Snældu Heimaþjónustu og Húnaþingi vestra. Hægt er að leita til hennar í síma 4321321 og [email protected].
Heimaendurhæfing
Heima­end­ur­hæf­ing­in fel­ur í sér tíma­bundna þjálf­un til sjálfs­hjálp­ar, ráðgjöf til að auka færni, virkni og bjargráð í at­höfn­um dag­legs lífs sem og sam­fé­lagsþátt­töku.
Elsche Oda Apel er starfandi sjúkraþjálfari í heimaendurhæfingu.